Fróðleikur

21 Jun, 2023
Sumarmánuðir eru rólegir hjá næringarþerapistanum og þá er annað hvort að láta sér leiðast eða finna uppá einhverju nýju. Þess vegna datt mér í hug að gera svolítið skemmtilegt og vonandi láta gott af mér leiða í leiðinni. Ég elska svona ”winwin” dæmi, þegar bæði ég og aðrir hafa gaman og gott af því sem ég geri. Jáskorun í júli (mér finnst jáskorun mun fallegra orð en áskorun...) er eitthvað sem fæddist í kollinum á mér klukkan fimm að morgni, svona eins og gengur og hugmyndin lét mig ekki í friði. Þannig ég bara ákvað að kíla á verkefnið. Þetta snýst um að ég kem fram með fjórar jáskoranir, eina á viku í allan júlí. Mig langar svo að sýna fram á að sumarfrí og ferðalög þurfa ekki að setja heilsu og líðan á hliðina, heldur eru ótrúlega einföld ráð sem virka og hjálpa til við að halda gleðinni og heilsunni gangandi. Þessar jáskoranir eru þannig að allir, nákvæmlega allir geta tekið þátt! Jáskorun í júlí fer fram í Facebook hópi og er algjörlega ókeypis og án allra skuldbindinga. Það hangir ekkert á spítunni. Ég bara hvet þig til að taka þátt og skella þér inn í hópinn! Þú þarft bara að segja já! Hér er slóðin: Facebook hópurinn - Jáskorun í júlí
12 Mar, 2023
Ég fæ oft spurninguna...“Ef ég ætla að gera vel við mig og fá mér einhverskonar gosdrykk, hvað er þá skárri kostur, með sykri eða gervisykri?“ Fyrst ætla ég að vera hrútleiðinleg og segja...hvorugt er gott! Ég á eiginleg ekki gott með að mæla með öðrum kostinum fram yfir hinn og hugsanlega myndi ég bara ekkert gera það heldur reyna að benda á aðra kosti. En hverjir eru þeir þá? Ef einstaklingur er til dæmis að forðast sykur og vill fá sér eitthvað gott, hvað gæti það þá eiginlega verið? Einmitt, það er nefnilega fátt um fína drætti. Langflestir sykurlausir drykkir eru fullir af ömurlegum týpum gervisykurs og til að toppa vitleysuna, þá kalla framleiðendur þessa drykki „heilsuvörur“. Ég varð til dæmi mjög svekkt þegar ákveðinn, frekar kúl drykkur kom fram á sjónarsviðið fyrir allnokkrum árum síðan. Drykkur með kollageni, mjög svalt dæmi. En ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég sá að þessi drykkur inniheldur glataðan ódýran gervisykur. Vonandi eykst úrvalið hérlendis á gæða sykurlausum drykkjum í kjölfar aukinnar umræðu um skaðsemi gervisykurs. Vonandi! En fram að því, hvað getum við þá annað drukkið en pínu leiðigjarnt kranavatnið? Við getum alveg útbúið okkur holla, bragðgóða og dásamlega drykki sjálf. Það er hægt að nota vatn eða sódavatn sem grunn. Svo er hægt að bæta samanvið allskonar fíneríi. Til dæmis myntu, lime, sítrónu, appelsínu, gúrku, berjum og fleiru slíku. Svo kemur leynihráefnið.... Til að losna við sykur eða gervisykur er upplagt að nota stevíudropa sem fást bæði hreinir og með ýmsum bragðefnum. Það þarf rosalega lítið af þeim, jafnvel ekki nema 1-2 dropa í 1/2 l af drykk. Prófið ykkur áfram, sleppið ykkur lausum í tilraunir og ég lofa þetta mun bragðast vel og líkami og sál munu þakka fyrir sig.
21 Dec, 2022
Jólin eru tími til að njóta, en við nennum samt ekki að vera að drepast í maganum og meltingunni...er það? Margir höndla hátíðarmatinn og breytt mataræði ágætlega en ég myndi halda að meirihluti fullorðinna gæti verið í dálitlum vandræðum með meltinguna sína. Þess vegna tók ég saman lítinn lista yfir ýmislegt sem er hægt að gera og taka inn, svona fyrir ykkur sem eruð pínu í veseni með þetta. Þetta er auðvitað langt frá því að vera tæmandi listi, en getur virkað sem hugmyndabanki fyrir einhverja. 1. Sítróna: Volgt vatn með sítrónu getur gert kraftaverk, sé það drukkið á fastandi maga á morgnana eða fyrir stóra máltíð. Sítróna örvar meltinguna til góðra verka. 2. Meltingarhvetjandi jurtir: Ýmsar blöndur eru til, sem örva framleiðslu líkamans á meltingarensímum og galli. Takist með máltíðum. 3. Meltingarensím: Geta hjálpað til við niðurbrot fæðunnar og sérstaklega þegar meltingin er undir miklu álagi eins og á jólum og stórhátíðum. Takist fyrir eða með máltíðum. 4. Betain HCL: Sýra í töfluformi sem getur hjálpað til við niðurbrot fæðu, sérstaklega próteinríkrar fæðu, s.s. kjöts. Takist með máltíðum. 5. Meltingargerlar (probiotics): Hjálpa til við að byggja upp og viðhalda æskilegri þarmaflóru og halda vindstigunum í skefjun... Takist gjarnan kvölds og morgna á álagstímum. 6. Margar fleiri jurtir og hjálparefni eru til sem geta gagnast meltingarfærunum. S.s. regnálmur, fjallagrös, Tryphala og fl. 7. Magnesíum: Ef allt stíflast og fer í vesen, þá getur magnesíum (sítrat til dæmis) hjálpað til við að losa. 8. Mjólkurþistill: Flott jurt til að styðja við lifrina ef hún hugsanlega er undir meira álagi en venjulega. 9. Það er hægt að fá ýmislegt sem virkar vatnslosandi, ef blessaður bjúgurinn safnast fyrir. Persónulega finnst mér nettlu te virka best. 10. Sleppið svo samviskubitinu, þó þið borðið eitthvað sem er pínu djúsí og gott. Meltingin virkar miklu betur án samviskubits og það hefur aldrei neinn grætt á því að rífa sig niður í svaðið fyrir Nóa konfekt eða tertusneið. Gleðileg jól!
14 Dec, 2022
Ég vil nú byrja á að minnast á að í mínum huga er orðið „kerling“ bara alls ekki neikvætt, svo það sé nú sagt. Aftur á móti ef ég stafset það „kelling“ þá er það allt annað mál. En að aðalatriðinu... Ég segi fyrir mig, að ég nenni ekki að verða lasburða og veikur heldri borgari. Ég vil lifa heilbrigðu og innihaldsríku lífi. Vera virk, hreyfa mig og njóta hvers dags. Ég vil gera allt sem ég get til að vera heilbrigð, líkamlega sem andlega. Þú gætir sagt, „Já en kona góð, þú ræður því nú ekkert!“ Mitt svar er, „jú víst!“ Að miklu leiti... Auðvitað getur allskonar komið uppá, óvænt veikindi, slys og guð einn veit hvað, en að mestu leiti vil ég meina að ég og þið öll, stjórnið þessu dálítið mikið sjálf. Það er ekki bara mín skoðun, heldur einnig ótal margra vísindamanna sem eru þessa dagana á kafi við að skoða orsakir sjúkdóma sem hellast yfir heimsbyggðina eins og faraldur þessi árin. Sjónir þeirra beinast að þessum svokölluðu bólgusjúkdómum, sem eru nánast allir sjúkdómar sem þú finnur í orðabókinni. Gigtar og sjálfsónæmissjúkdómar, húðsjúkdómar, meltingarfærasjúkdómar, hjarta og æðasjúkdómar, sykursýki, þunglyndi, kvíði, lifrarsjúkdómar, astmi og öndunarfærasjúkdómar, Parkinson´s, krabbamein, Alzheimer´s... listinn er langur. Munum við þróa með okkur þessa sjúkdóma? Við ráðum því að þó nokkru leiti sjálf, í alvöru! Auðvitað getur verið að við séum innbyggð með einhver skrattans leiðinda gen, sem segja að við séum viðkvæm fyrir einhverjum þessara sjúkdóma, en við getum samt gert svo mikið sjálf til að koma í veg fyrir að þau nái yfirhöndinni. Ég sé genin fyrir mér eins og loftljós með dimmer... Ef við erum í ruglinu í mataræðinu og sykurneyslunni, allt of stressuð, hreyfum okkur ekki reglulega, jafnvel reykjum, drekkum of mikið, vantar ákveðin næringarefni, vítamín og steinefni þá er fjandinn laus og loftljósið (genin) ná upp miklu ljósi og styrk. Ef við aftur á móti pössum að halda blóðsykrinum jöfnum með rétt samsettu mataræði (berja niður sykurlöngunina með " kolvetnakápum " og fleiru), iðka streitulosun, hreyfum okkur reglulega, pössum að fá nægilegt magn helstu vítamína og steinefna, þá er líklegt að við náum að halda ljósinu í kósý lágmarki og genin ná ekki að stjórna aðstæðunum. Ég allavega vil gera allt sem ég get til þess að verða hress eldri kerling og ég veit að þið viljið það örugglega flest líka. Ég labbaði uppá fjall hér í Colorado í september. Svolítið hátt fjall, yfir 4300 metrar á toppinn. Þetta var alveg ágætis áskorun fyrir mig, loftið þunnt, það var kalt og labbið langt. Þegar við vorum alveg að koma á toppinn, þá mættum við hjónum. Þau voru bæði í kringum áttrætt. Ógeðslega flott og í geggjuðu formi. Ég mun aldrei nokkurn tíma gleyma þessu fólki. Þau eru greypt inn í minnið og í hvert skipti sem ég verð eitthvað aðeins of kærulaus varðandi lífstílinn, þá gref ég upp þessa minningu. Ég ætla að verða eins og þau. Heilbrigður lífstíll er ekkert meinlæta leiðinda líf. Það að stjórna blóðsykri snýst til dæmis ekkert um boð og bönn, heldur ákveðna tækni, sem allir geta tileinkað sér, sama á hvaða mataræði viðkomandi er. Þú getur líka unnið með þetta, það er auðveldara og miklu skemmtilegra en þú heldur, ég lofa. Ég ætla að byrja fjögurra vikna netnámskeið þann 10.janúar – Sigrumst á sykrinum. Á þessu námskeiði kenni ég þér hvernig þú getur komið böndum á sykurlöngun og komið jafnvægi á blóðsykurinn, sem er að mínu mati það mikilvægasta þegar kemur að forvörnum og meðhöndlun þessara áðurnefndu bólgusjúkdóma. Ég kenni þér nýja hugsun, er með aðeins öðruvísi nálgun en þú hefur kannski séð áður og lofa að vera skemmtileg og alls ekki ýkt! Þú getur séð meira um námskeiðið hér og skráð þig : Ég hlakka til að vera með þér í janúar. .
11 Dec, 2022
Við erum nú stödd í svartasta skammdeginu og rosalega mikilvægt að huga að heilsunni, ekki bara þeirri líkamlegu heldur ekki síður hinni andlegu. Það eru ákveðin efni, vítamín og steinefni, sem eru sjúklega mikilvæg fyrir geðslagið og ef uppá vantar í kroppinn þá getur það valdið veseni. Mig langar að deila hér með ykkur litlum lista yfir bætiefni sem get hjálpað gegn streitu, þyngslum og kvíða. Þá eru lykilorðin „geta hjálpað“, því stundum þarf auðvitað mun meira til að vinna gegn slíku, læknishjálp og/eða sálfræðimeðferð. Þetta er líka engan veginn tæmandi listi eða upptalning, svo ótal margt sem getur hjálpað, en það nennir nú enginn að lesa rosa langan pistil. Það eru fjölda margar rannsóknir sem sýna fram á að þessu eftirtöldu efni, geta haft jákvæð áhrif í svona aðstæðum. Hér koma mínar hugmyndir: B vítamín B vítamínin eru auðvitað ekki bara eitt efni, heldur mörg og best er að taka inn blöndu B vítamína. Þau fíla félagskap hvers annars og nýtast best í hóp. Skortur á ákveðnum B vítamínum er nokkuð algengur og getur dregið úr mannskapnum allan mátt. B 12 skortur er gott dæmi um það. Hann lýsir sér í mikilli þreytu, mæði, minnistruflunum, svima og þunglyndi svo eitthvað sé nefnt. B 12 upptaka er háð ákveðnum þætti í meltingarfærum (intrinsic factor) og það er mjög algengt að upptakan sé slæm. Það getur hreinlega verið arfgengt. Einnig hafa magalyf (svokölluð PPI lyf) áhrif og geta dregið stórkostlega úr upptöku. Það er margt sem getur valdið því að okkur vantar hin ýmsu B vítamín. Léleg upptaka eins og ég nefndi hér að ofan, sum lyf valda skorti, einhæft mataræði, áfengisdrykkja og ýmislegt fleira. B vítamínin eru vatnsleysanleg, sem þýðir að það er engin hætta á að þau safnist upp í líkamanum og valdi eitrun eða slíku. Þannig að ykkur er óhætt að taka þau inn að staðaldri í stórum nokkuð skömmtum. Það að þau eru vatnsleysanleg þýðir líka að þá getur líkaminn ekki geymt mikinn forða og því nauðsyn að fylla á reglulega. B vítamínin eru fjölmörg, en best er að taka þau inn öll saman, eins og áður sagði. Hins vegar má svo bæta við skammti einhverjum ákveðnum B vítamínum, ef ástæða er til. Til dæmis B12 vítamíni. Þið getir fengið mælt í blóðprufu hjá lækni hve vel þið standið í B12 og um að gera að fá það mælt ef þið kannist við einhver einkenna hér að ofan eða grunar að þið séuð lág í B12. D vítamín Við vitum að við þurfum að taka það inn allt árið en sérstaklega mikilvægt yfir vetrartímann, þar sem við fáum ekki nægilegt magn úr sólinni stærsta tíma ársins. Jafnvel er talað um að við náum ekki að vinna D vítamín úr sólinni nema í uþb 6 vikur á ári. Það er nú bara fj.... kornið ekki neitt. Það er líka mjög erfitt að fá nægilegt D vítamín úr fæði, nánast ómögulegt nema borða þorskalifur reglulega, persónulega nenni ég því ekki! En hvað kemur D vítamín þyngslum, kvíða og stressi við? Jú heil mikið bara. D vítamín er magnað og virkar eiginlega líkt og hormón í líkamanum. Komið hefur í ljós, þegar fólk með þunglyndi og kvíða er rannsakað, að það hefur oft lág gyldi af D vítamíni og rannsóknir hafa sýnt að það að kippa því í lag hefur stórkostleg áhrif. Voila! Það er þá bara „winwin“ að taka inn D vítamín núna, því það hefur ekki eingöngu góð áhrif á andlega líðan heldur er það algjör nauðsyn öflugu ónæmiskerfi í baráttunni við veirur og annan skít. Ég þarf ekki að segja meira held ég. Allir að ná sér í D vítamín. Magnesíum Auðvitað magnesíum! Flestir hafa líklega heyrt um mikilvægi þess fyrir líkama og sál, en skoðum það aðeins betur. Magnesíum er þátttakandi í yfir 300 efnahvörfum í líkamanum. Það þýðir að ef að líkaminn hefur ekki nóg magnesíum þá eru öll þessi efnahvörf þyngri í vöfum og jafnvel ganga ekki upp. Það er talið að allt að 75% fólks nái ekki að fá nóg magnesíum úr fæðu...það er dáááálítið stór hópur. Magnesíumskortur getur lýst sér á ýmsa lund og með furðulegustu einkennum. Hér eru þau líkamlegu: Sinadrættir, fótapirringur, krampar, vöðvakippir og þreyta, óreglulegur hjartsláttur, hár blóðþrýstingur og jafnvel flog. Hér eru svo þau andlegu: Þunglyndi, kvíði og aukin streitueinkenni og minna þol gegn álagi... Þar hafið þið það! Við nennum nú ekkert að láta einhvern magnesíumskort skemma fyrir okkur heilsuna, og það er líka svo auðvelt að kippa þessu í liðinn með því einfaldlega að taka inn magnesíum daglega. Ef þið hafið ekki tekið inn magnesíum áður, þá er bara eitt að varast. Ekki byrja á of stórum skammti....það er ávísun á vesen.... Margar tegundir magnesíums eru nefnilega mjög losandi í ofurskömmtum. Já ég er að reyna að segja á penan hátt (veit ekki hversvegna ég er að reyna það samt) að þið fáið niðurgang af of miklu. Best er að auka skammtinn hægt og rólega og svo bara halda sig í viðhaldsskammti. Það er mjög einstaklingsbundið hvað hver og einn þarf mikið, það fer eftir aldri, ástandi, mataræði, hvort viðkomandi sé á lyfjum sem hafa áhrif á jafnvægið og einnig hvort mikil áfengisneysla sé málið. Eins og ég sagði í upphafi, þá eru þetta einungis þrjár hugmyndir margt annað sem skiptir miklu máli. Höldum í heilsuna og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að láta okkur líða vel í vetur!
18 Nov, 2022
Já, ég hafði það loksins af að opna heimasíðu. Lénið www.inga.is er búið að vera ofan í skúffu í meira en áratug og svo sannarlega kominn tími til að gera eitthvað skemmtilegt með það. Ég er rosalega ánægð með að vera loksins komin með heimili fyrir skrifin mín, námskeiðin og allan fróðleikinn sem mig langar að miðla með ykkur. Ég hlakka til að fá ykkur oft og mörgum sinnum í heimsókn <3
04 Nov, 2022
Öllum er okkur umhugað um börnin okkar og viljum þeim það besta. Það eru margir krakkar sem kvarta undan verkjum í fótum, sérstaklega á kvöldin þegar þau fara að sofa. Þau sem æfa íþróttir eru sérstaklega gjörn á þetta. Það er allt í lagi (fyrir lang flest) að gefa þeim svolítið magnesíum fyrir svefninn. Það er hægt að fá slíkt í hylkjum eða dufti sem sett er út í vökva. Bara spurning hvað hentar best. Magnesíum hefur slakandi áhrif á alla vöðva og ef vantar upp á byrgðirnar þá er möguleiki á að þau fái verki og krampa í fætur. Magnesíum finnst auðvitað í fæðu, en mörg börn fá þó alls ekki nóg og mikið unnin matur er yfirleitt snauður af magnesíum. Magnesíumríkar fæðutegundir eru: hnetur og möndlur heilkorn baunir og linsur döðlur, rúsínur og bananar brokkolí, blómkál, rósakál, grænkál, rauðrófur, sellerý og fl grænmeti. kartöflur
04 Nov, 2022
Hafið þið eitthvað spáð í hvað er gott við það að eldast? Spekulerað í hvort eitthvað sé jákvætt við það? Við höfum pínu tilhneigingu til að einblína á neikvæðu þættina enda er okkur kennt það dálítið með allskonar auglýsingum og skilaboðum úr ýmsum áttum. En við þurfum nú ekkert að hlusta á það frekar en við viljum. Það er sko alveg eðlilegt að fá hrukkur, slit hér og þar, færri eða fleiri kíló eða hvað það nú er sem við upplifum. Persónulega finnst mér gott að eldast og get í einlægni sagt að ég myndi ekki vilja vera deginum yngri. Lífið er búið að kenna og skóla mann til, þannig að reynsla og upplifun hefur skapað þá manneskju sem ég er í dag. Ekki myndi ég vilja hafa misst af einni einustu mínútu. Auðvitað hefur ýmislegt verið sárt og erfitt og sumt hund leiðinlegt, en ég hef þá trú að öll upplifun undirbúi mig undir það sem koma skal. Þroski getur verið sár, en ef kosið er að nýta sér erfiðleika til góðs þá horfir það aðeins öðruvísi við. Betra að sleppa því að vera fórnarlamb ekki satt! Ég held að lykillinn að því að njóta þess að eldast sé að læra að þekkja sjálfa sig vel. Þá er auðvelt að velja fyrir sig, sortera út það sem hentar ekki og bæta inn því sem passar. Mér finnst ég hafa miklu minna þol fyrir rugli og bulli og nenni ekki að taka þátt í leiðinlegum samskiptum sem gefa mér ekkert. Ég vel að umgangast fólk sem hefur góð áhrif á mig. Það er svo gott að vera búin að sleppa tökum á hvað aðrir eru að gera og átta sig á að það komi manni bara alls ekki við. Það er sko frelsi, maður minn ! Og á móti er mér drullu sama hvað öðrum finnst um hvað ég geri.....eða svona nokkurn veginn, held það náist kannski aldrei alveg – alla leið. Dagsformið er líka misjafnt í þessu sem og öðru. Þegar við eldumst þá áttum við okkur líka betur á því sem skiptir máli. Ég held við lærum líka að njóta lífsins betur, staldra við og draga andann aðeins dýpra. Njóta þess að fá að lifa og vera. Hvert aldursskeið hefur sinn sjarma. Ég veit að það getur verið skít erfitt að sjá það, ef kona er á bullandi breytingaskeiði, sveitt, verkjuð, svefnlaus og andlega búin á því. Ég þekki það...úfff... Við þurfum þá að reyna að gera allt sem við getum til að láta okkur líða betur, nota öll bjargráðin sem bæði við sjálfar og aðrar konur kunna og halda áfram að lifa og njóta. Leitin getur leitt okkur á slóðir sem við áttum ekki von á að fara, en þá er að taka því opnum örmum. Dæmum hvorki aðrar né okkur sjálfar fyrir hvaða leið við veljum. Ég held að það sé mikilvægt að við horfum jákvætt á lífið, sama á hvaða aldri við erum eða hvar við erum staddar í lífinu. Það er oft pínu vesen og ogguponsu leiðinlegt, en við gerum okkar besta eins og ávallt. Ef við spáum í það þá höfum við hver og ein áorkað ótrúlega miklu, við höfum verið ógisssslega duglegar, græjað og gert og komist áfram í lífinu. Ég held við flestar eigum sigra sem við höfum ekki einu sinni komið auga á. Við höldum áfram þannig. Og afsakið... gleymdi næstum....svarið við spurningunni er já! Það er gott að eldast!
03 Nov, 2022
– Sukk eða sælu? Við þekkjum það öll að detta í sukkgírinn á sumrin. Það er eins og það sé bara innprentað í okkur og algjör skylda að hrapa lóðbeint ofan í gumsgryfjuna með tilheyrandi móral og vanlíðan. En hvað ef það er til leið til að njóta alls þess besta í mat og drykk, án þess að vera að drepast úr vanlíðan og veseni? Jú einmitt, það er hægt! En til þess að geta það þá þarftu að semja frið við líkamann og hugann. Þú þarft að vinna með líkamanum, semja frið og skapa hugrænt ástand sem ekki snýst um niðurrif og sjálfsásakanir. Þú vilt jafnvægi... það vilja allir jafnvægi og það er það sem við ættum alltaf að vera að stefna að. Til að vinna með sumarsukkið, þá er málið að skapa jafnvægi í blóðsykrinum. Blóðsykursfriðurinn! Hér eru nokkur ráð til þess, sem virka: Passa að allar máltíðir innihaldi prótein. Það er próteinið fyrst og fremst sem skapar frið og jafnvægi. Horfðu á diskinn þinn, matseðilinn, hlaðborðið, hvar er próteinið? Trefjar eru vinsamlegar jafnvæginu, þær koma úr grófmeti og grænmeti, sem er nauðsyn til að koma böndum á sukkið. Hvítt hveiti, grjón og svoleiðis eru hrein sterkja og rugla allt. Veldu þetta grófa frekar. Alltaf velja grænmeti þegar þess er nokkur kostur og hafa það með. Fita er flott! Hún er vinsamleg og ætti að vera með í ölum partíum. Sykur, sælgæti og áfengi...aldrei nokkurn tíma á fastandi maga! Alltaf eftir próteinríka máltíð. Labbitúr í 10 mínútur eftir máltíð kemur á jafnvægi, bara róleg ganga til að koma næringunni í notkun. Svo er það andlega hliðin...niðurrif og sjálfsásakanir gera aldrei neinum gagn, það er margreynt. Ég þekki engan sem hefur grætt á því. Það gerist eitthvað, þú borðar fæðu sem er ekkert spes fyrir þig, þú verður galin út í sjálfan þig og útaf af því að þú ert hvort sem er búin að klúðra öllu, þá geturu bara alveg eins haldið áfram bullinu. Er þetta eitthvað vit? Nei, ekkert vit. Ef eitthvað gerist sem þú ert ekki að fíla, mundu þá að það kemur nýr dagur á morgun og alveg óþarfi að halda bullinu áfram. Ef þú nærð að hugsa svona, í stað þess að detta ofan í niðurrifs spíralinn, þá ertu í góðum málum
03 Nov, 2022
þegar við erum í streituástandi, myndar líkaminn mikið af streituhormónum, sem við í raun höfum ekkert vitrænt við að gera. Langtíma álag heldur líkamanum í heljargreipum og við erum undirbúin fyrir átök sem við þurfum svo aldrei að fara í. Þetta er viðbragðið "fight- flight" sem er auðvitað nauðsynlegt þegar að okkur steðjar hætta og við þurfum að berjast eða flýja. Streituhormónin flæða um líkamann, lifrin skellir glúkósa sem orku út í blóðið og við getum tekið á aðstæðum. Hins vegar er það þannig að margir, jafnvel fleiri en færri, eru stöðugt í þessu ástandi vegna langtíma álags og streitu. Sú staða skapar helling af vandamálum og eitt þeirra er það, að blóðsykurinn fer í rugl og líkaminn heldur vel og rækilega í fituforða. Hann er einfaldlega ekki fær um annað! Þeir sem eru undir miklu álagi, upplifa því margir að þeir eiga í miklum erfiðleikum með að léttast. Líkaminn er bara í öðrum verkefnum, streituhormónin trufla fitubrennsluna og ekkert gerist. Því er mikilvægt að ná tökum á stressinu og það er gott allra hluta vegna.
Fleiri fréttir
Share by: