Ofurkonur 40+ - hefst 16. maí

Vilt þú verða sterkari, kraftmeiri, orkumeiri, liðugri, auka fitubrennslu, líða betur andlega og eldast betur?

Þá er þetta netnámskeið fyrir þig - þetta verður ekki þægilegra!

Skrá mig

Námskeiðsupplýsingar

Á þessu fjögurra vikna netnámskeiði færð þú:


  • Aðgang að lokuðum Facebook hóp, þar sem allar æfingar og fróðleikur kemur inn. Við setjum inn fróðleik, hvatningu og hagnýtar upplýsingar fyrir þig á hverjum einasta degi í formi myndbanda og pistla.


  • Fjóra lifandi Zoom fundi með Ingu næringarþerapista og Gurrý þjálfara, þar sem farið verður yfir æfingarnar, allt um mataræði, styrktarþjálfun, hvaða bætiefni gagnast og fleira. Fundirnir eru teknir upp og þú getur horft hvenær sem er, eða aftur og aftur ef þú vilt. Fundirnir eru fjögur fimmtudagskvöld klukkan 20.00 og sá fyrsti 16. maí..


  • Styrktarþjálfun með Gurrý sem hefur sett saman einfalt en áhrifaríkt æfingaplan sem allar geta fylgt. Þú getur æft á þeim tíma sem þér hentar, heima með lágmarks *búnaði, eða æft í þinni líkamsræktarstöð.


  • Tvær 40 mínútna æfingar á viku, með öruggum og einföldum æfingum, sem settar verða inn í Facebook hópinn. Allt verður á PDF skjali með myndböndum þar sem Gurrý leiðir þig áfram í gegnum æfingarnar. Alltaf nokkra möguleikar í boði fyrir hverja æfingu, þannig þú getur aðlagað þær að þinni getu og heilsufari.


  • Kennslu frá Ingu varðandi hvernig mataræði hentar þegar þú vilt byggja þig upp með styrktarþjálfun, hvernig þú borðar til að fá meiri orku, kraft og auka fitubrennslu. Einnig kennslu um hvernig þú getur reiknað út magn næringarefna í máltíðum (aðallega prótein) og aðstoð ef þú þarft.


  • Fræðslu um hvaða bætiefni virka fyrir þig og hvernig á að velja þau og taka þau inn.


  • Mikla hvatningu, aðhald, umhyggju og aðstoð. Það er alltaf í boði að spyrja spurninga, líka í einkaskilaboðum til Ingu og Gurrýjar.


*þú þarft að hafa aðgang að handlóðum, dýnu, æfingabekk og litlum teygjum( minibönd er til dæmis hægt að kaupa 3 saman í Sportvörum á góðu verði) einnig væri gott að hafa hjól eða bretti en það má líka nota stuttan göngutúr í upphitun en þarf ekki. Gurrý segir ykkur allt um þetta á fyrsta fundinum okkar.


Verð fyrir allan þennan pakka aðeins 24.900.-

ATH! Takmarkaður fjöldi.


Styrktarþjálfun

Mataræði

Bætiefni

Hvatning, aðhald og umhyggja

Taktu skrefið í átt að betri heilsu

Share by: